Persónuleg
stefnumótun

Einstaklingsnámskeið
12 skipti í starfstengdi markþjálfun

Stundum byrjar breyting ekki með stórri ákvörðun.
Heldur með lítilli kveikju sem tendrar glæður og kemur vélunum í gang.

Þetta byrjar oft á tilfinningu um að eitthvað sé farið að kalla á þig.
Að þú sért tilbúin að horfa á starfið þitt, starfsferilinn og þig sem fagmanneskju með nýjum augum.
Kannski finnur þú að eitthvað innra með þér vill meira rými, meiri skýrleika, dýpri tilgang, eða einfaldlega annan takt.

  • Kannski ertu á starfstengdum tímamótum.

  • Kannski ertu búin að gefa mikið af þér og finnur að nú sé kominn tími til að hlusta betur inn á við.

  • Kannski veistu að þú vilt annað eða meira en ert ekki alveg viss um hvað það er eða hvernig þú getur komst þangað.

  • Kannski langar þig að styrkja sjálfa þig í starfi, endurmeta stefnu þína og taka næstu skref af meiri festu, trú og sjálfstrausti.

Persónuleg stefnumótun er 12 tíma einstaklingsnámskeið í starfstengdri markþjálfun sem ætlað er að efla sjálfsþekkingu og sjálfsvitund, skýrleika og framtíðarsýn. Þetta er fyrir þau sem vilja staldra við, tengjast sér betur og móta sína eigin starfsþróun og sjálfstraust í starfi, á sínum forsendum.

Þetta er rými fyrir þig til að hlusta á hvað það er sem þú raunverulega vilt.
Rými til að skapa skýra framtíðarsýn sem kveikir eldmóð og drifkraft innra með þér.
Rými til að styrkja það sem býr innra með þér og nýta það til góðra verka.
Rými til að seetja niður markmið og móta næstu skref með meiri meðvitund, hugrekki og stengingu við það sem skiptir þig raunverulega máli.

Á tímamótum í starfi
You are not lost

Fyrir hverja er þetta?

Námskeiðið er fyrir þig ef þú finnur að eitthvað í starfinu þínu þarf athygli, endurmat eða nýja stefnu.

Það getur átt við ef þú:

  • ert á starfstengdum tímamótum

  • vilt meiri skýrleika um næstu skref

  • finnur fyrir efasemdum, óöryggi eða innri togstreitu

  • vilt efla sjálfstraust, fókus og innri styrk

  • vilt skoða nýja möguleika eða móta skýrari stefnu í starfi

  • þarft að styrkja mörk, efla eigin rödd og faglega nærveru

  • vilt meira jafnvægi, sjálfbærni og tilgang í lífi og starfi

Kannski veistu nákvæmlega hvað er að angra þig.
Kannski finnurðu það bara óljóst í líkamanum, að eitthvað sé orðið of þröngt, of þungt eða þjónar þér einfaldlega ekki lengur.

Ferðalag í þremur skrefum

Námskeiðið skiptist í þrjá hluta sem mynda saman heildstæða og lifandi leið í gegnum starfstengda sjálfsskoðun, sjálfstyrkingu, markmiðasetningu og aðgerðir í átt að breytingum.

Kveikjan

Við byrjum hér.
Við stöldrum við og skoðum stöðuna eins og hún er í dag.
Við hlustum eftir því sem er að kalla á athygli, því sem skiptir þig máli og því sem vill fá að sjást skýrar.

Í þessum hluta vinnum við með sjálfsþekkingu, styrkleika, gildi, þarfir, viðhorf og það sem gefur eða dregur úr orku. Hér verður leggjum við grunninn með heiðarleika, mýkt og meðvitund.

Eldurinn

Hér fara hlutirnir að lifna við.
Þú ferð að finna betur hvað býr innra með þér, hvað þú þráir, hvað þú vilt, hvað þú óttast og hvað þú ert tilbúin að kanna nánar.

Í þessum hluta vinnum við með innri hindranir, neikvætt sjálfstal, sjálfstraust, löngun, framtíðarsýn og nýja möguleika. Þetta er hjartað í ferlinu, staðurinn þar sem krafturinn vaknar og glæður eldmóðsins eru tendraðar.

Flugið

Hér veitum við vængi öllu því sem hefur verið að mótast hingað til.
Við tökum innsýnina, styrkinn og skýrleikann og færum það yfir í stefnu, ákvarðanir og raunveruleg næstu skref.

Flugið snýst ekki um að þjóta af stað, heldur að móta aðgerðir af festu, áræðni, betri tengingu við sjálfa sig og heildrænni sýn á framtíðina.

Finndu þína leið

Hvað er innifalið?

Námskeiðið er sérsniðið og aðlagað að hverjum og þínum þörfum og við finnum í sameiningu takt sem hentar þér. Með því að skrá þig á námskeiðið færð þú:

  • 12 einkatíma í starfstengdri markþjálfun

  • Stuðning og ráðgjöf við að móta stefnu í eigin starfsframa og lífi

  • NBI-huggreiningu

  • Styrkleikapróf

  • Ígrunduð heimaverkefni

  • Ýmis hagnýt verkfæri til að nýta í lífi og starfi

Námskeiðið kostar 189.000 kr og þú skráir þig með því að smella á hnappinn hér að neðan eða með því að senda mér póst á lella@lella.is