Endurheimt með
mýkt og meðvitund

Gefðu taugakerfinu frí, lærðu að hlusta á líkamann og byggðu þig upp á eigin forsendum.

6 vikna námskeið
Einu sinni í viku, 90-120 mínútur í senn

Kannast þú við eitthvað af þessu?

  • Ertu í starfsendurhæfingu eða að byggja þig upp eftir kulnun, langvarandi álag eða veikindi?

  • Finnur þú að þú ert að nálgast vegginn ógurlega?

  • Upplifir þú efasemdir, óöryggi, þreytu eða innri pressu?

  • Vilt þú læra að róa taugakerfið, efla sjálfsvitund og sýna þér aukna mildi og skilning?

Ef svarið er já, þá veistu líklega að raunveruleg endurheimt snýst um meira en að „hvíla sig aðeins“ og keyra svo aftur af stað.

Bataferli og endurheimt eru krefjandi tímabil þar sem líkami, hugur og taugakerfi þurfa tíma, mýkt og öruggt rými til að finna jafnvægi á ný.

Fyrirkomulag

Við hittumst einu sinni í viku í sex vikur og hver tími er 90-120 mínútur. Unnið er með öndurnartækni, milt jóga, hugleiðslu, líkamsmiðaða markþjálfun og hver tími endar á leiddu slökunarjóga.

Næsta námskeið hefst 21. ágúst 2026

📅Hvenær: Á föstudögum kl. 9-11
📍Hvar: Lotusþjálfun, Hátún 6b, 105 Reykjavík
🏷️Verð: Snemmskráningarverð er 24.900 kr (fullt verð 29.900 kr)

Um námskeiðið: Öruggt rými til að hægja á

Endurheimt með mýkt og meðvitund er heildrænt, 6 vikna námskeið, sérstaklega hannað fyrir þig sem vilt styðja við bataferlið þitt á hlýjan og markvissan hátt. Það hentar afar vel þeim sem eru að ná fótfestu á ný og þurfa meiri mýkt og nærandi slökun áður en næstu skref út í virkni eða vinnu eru stigin.

Hér er unnið með mildar en áhrifaríkar aðferðir sem hjálpa þér að:

  • Finna meira öryggi í eigin líkama.

  • Róa og styrkja taugakerfið.

  • Styrkja innri ró og traust á eigin getu.

Engin pressa. Engin krafa um afköst.

Þetta námskeið snýst ekki um að „koma sér í gang“ með hörku. Hér er enginn að ætlast til þess að þú „standir þig“. Þvert á móti er áherslan lögð á að hægja á, staldra við, draga úr spennu og skapa betri grunn fyrir framhaldið. Við mætum þér nákvæmlega þar sem þú ert í dag, af virðingu og skilningi.

Hvað gerum við í tímum?

Við fléttum saman hagnýtum æfingum, hugleiðslu og líkamsvinnu til að hlúa að bæði líkama og huga. Unnið verður meðal annars með:

  • Öndunartækni: Æfingar sem styðja við ró og koma á jafnvægi.

  • Milt jóga: Einfaldar hreyfingar sem næra líkamann.

  • Yoga Nidra & djúpslökun: Hjálpar líkama og huga að hvílast á djúpstæðan hátt.

  • Hugleiðslu & núvitund: Eykur nærveru og innri kyrrð.

  • Líkamsvitund: Aukin næmni fyrir eigin merkjum, mörkum, orku og þörfum.

  • Sjálfsmildi: Aðferðir til að temja sér hlýrra innra viðmót gagnvart sjálfum/sjálfri sér og eigin ferli.

Byggðu þig upp af mýkt og meðvitund

Fyrir mörg sem hafa upplifað langvinn veikindi getur verið erfitt að treysta sér af stað á ný. Sum þekkja jafnvel ekki alveg sig sjálf lengur. Gefðu þér leyfi til að stíga skrefið inn í umhverfi þar sem þú færð rými til að hlusta á líkamann og finna út hvað það er sem styður raunverulega við þína endurheimt. Markmiðið er að þú náir stjórn á þínu taugakerfi, en að það stjórni þér ekki.

Ert þú tilbúin(n) að taka meðvituð og mjúk skref í átt að endurheimt, ró og aukinni vellíðan?

Lella Erludóttir

Lella er PCC vottaður markþjálfi og mannauðsráðgjafi og hefur sterka ástríðu fyrir því að styðja fólk og fyrirtæki í að ná vexti, jafnvægi og sátt í starfi. Hún byggir nálgun sína á djúpri hlustun, einlægni, jákvæðum samskiptum og djúpri tenginu við fólk.

Lella sérhæfir sig í starfstengdri markþjálfun og vinnu með fólki á starfstengdum tímamótum. Hún er þjónustuaðili hjá VIRK og vinnur sem slíkur að því að hjálpa að varða endurkomu sína inn á vinnumarkað eftir langvarandi veikindi.

Hún hefur sjálf persónulega reynslu af því að þurfa að stíga út af vinnumarkaði vegna veikinda og í því ferli þurfti hún að læra að slaka á og læra leiðir sem ýta undir endurheimt líkama og taugakerfis kynnast eigin möguleikum og styrk, setja sér markmið, ná jafnvægi vinnu og einkalífs og bæta eigið líf. Hún hefur sérstaka ástríðu fyrir því að hjálpa fólki að vinna með loddaralíðan og neikvætt sjálfstal.

Menntun og réttindi:

  • PCC vottun frá International Coaching Federation

  • Certified Embodiement Coach Training - Lýkur í ágúst 2026

  • RYT-200 Jógakennararéttindi

  • CMT-200 Hugleiðslukennararéttindi

  • YACEP-50 Kennararéttindi í Pranyama öndunartækni

  • YACEP-50 Jóga Nidra kennararéttindi

  • Kennararéttindi í bandvefslosun

  • Framhaldsnám í markþjálfun

  • Grunnnám í markþjálfun

  • MSc í mannauðsstjórnun

  • MA í blaða- og fréttamennsku

  • BA í sálfræði

Kennari