Endurheimt
með mýkt og meðvitund
6 vikna námskeið
Einu sinni í viku, 90-120 mínútur í senn
Ertu í starfsendurhæfingu eða að byggja þig upp eftir kulnun, langvarandi álag eða veikindi?
Finnur þú að þú ert að nálgast vegginn ógurlega?
Viltu þú læra að róa taugakerfið, efla sjálfsvitund og sýna þér aukna mildi og skilning?
Þá veistu líklega að endurheimt snýst ekki bara um að „hvíla sig aðeins“ og fara svo aftur af stað. Fyrir marga eru endurheimt og bataferli viðkvæm og krefjandi tímabil þar sem líkami, hugur og taugakerfi þurfa tíma, , mýkt, mildi og öruggt rými til að ná jafnvægi á ný. Oft fylgja þessu líka efasemdir, óöryggi, þreyta, innri pressa og spurningar um hvernig best sé að stíga næstu skref.
Endurheimt með mýkt og meðvitund er 6 vikna námskeið fyrir fólk sem vill styðja við endurheimt sína á hlýjan, markvissan og heildrænan hátt. Námskeiðið er sérstaklega ætlað þeim sem vilja styrkja innri ró, líkamsvitund og traust á eigin getu og. Námskeiðið hentar sérstaklega vel þeim sem eru að ná fótfestu á ný eftir kulnun eða önnur langvinn veikindi og þurfa meiri mýkt, slökun og nærandi endurheimt áður en næstu skref eru stigin.
Á námskeiðinu er unnið með mildar og áhrifaríkar aðferðir sem róa og styrkja líkamann og taugakerfið, styðja við bataferli og hjálpa fólki að finna meira öryggi í eigin líkama og líðan. Þar fléttast saman öndunartækni, jóga, hugleiðsla, djúpslökun, sjálfsmildi og hagnýtar æfingar sem hjálpa þátttakendum að hlusta betur á sjálfa sig, skilja eigin mörk, ná slökun og byggja sig upp með mýkt og meðvitund.
Þetta námskeið snýst ekki um afköst, pressu eða að „koma sér í gang“ með hörku.
Þvert á móti er áherslan á að hægja á, hlusta inn á við og skapa betri grunn fyrir áframhaldið. Markmiðið er að þátttakendur fái tækifæri til að staldra við, draga úr spennu, róa taugakerfið og öðlast aukinn skilning á því hvað þeir þurfa til að byggja sig upp á eigin forsendum.
Í tímum verður meðal annars unnið með:
öndunaræfingar sem styðja við ró og jafnvægi
einfaldar jógaæfingar sem næra líkamann
hugleiðslu og núvitund sem eykur nærveru og innri kyrrð
yoga nidra djúpslökun sem hjálpar líkama og huga að hvílast á dýpri hátt
sjálfsmildi og hlýrra innra viðmót
líkamsvitund og næmni fyrir eigin merkjum
skýrari tengingu við mörk, orku og þarfir
mildan undirbúning fyrir næstu skref í daglegu lífi, virkni eða vinnu
Fyrir marga sem hafa upplifað kulnun eða langvinn veikindi getur verið erfitt að treysta sér til þess að fara aftur af stað.
Sumir upplifa að þeir þekki ekki alveg sjálfa sig lengur. Aðrir finna fyrir kvíða, óöryggi eða óþolinmæði gagnvart eigin ferli. Á þessu námskeiði er unnið með þann veruleika af virðingu og skilningi. Þátttakendum er ekki ætlað að „standa sig“, heldur að mæta sér af meiri mýkt, læra að hlusta betur á líkama sinn og finna það sem styður þá raunverulega.
Kennari
Lella Erludóttir
Lella er PCC vottaður markþjálfi og mannauðsráðgjafi og hefur sterka ástríðu fyrir því að styðja fólk og fyrirtæki í að ná vexti, jafnvægi og sátt í starfi. Hún byggir nálgun sína á djúpri hlustun, einlægni, jákvæðum samskiptum og djúpri tenginu við fólk.
Lella sérhæfir sig í starfstengdri markþjálfun og vinnu með fólki á starfstengdum tímamótum. Hún er þjónustuaðili hjá VIRK og vinnur sem slíkur að því að hjálpa að varða endurkomu sína inn á vinnumarkað eftir langvarandi veikindi.
Hún hefur sjálf persónulega reynslu af því að þurfa að stíga út af vinnumarkaði vegna veikinda og í því ferli þurfti hún að læra að slaka á og læra leiðir sem ýta undir endurheimt líkama og taugakerfis kynnast eigin möguleikum og styrk, setja sér markmið, ná jafnvægi vinnu og einkalífs og bæta eigið líf. Hún hefur sérstaka ástríðu fyrir því að hjálpa fólki að vinna með loddaralíðan og neikvætt sjálfstal.
Menntun og réttindi:
PCC vottun frá International Coaching Federation
Certified Embodiement Coach Training - Lýkur í ágúst 2026
RYT-200 Jógakennararéttindi
CMT-200 Hugleiðslukennararéttindi
YACEP-50 Kennararéttindi í Pranyama öndunartækni
YACEP-50 Jóga Nidra kennararéttindi
Kennararéttindi í bandvefslosun
Framhaldsnám í markþjálfun
Grunnnám í markþjálfun
MSc í mannauðsstjórnun
MA í blaða- og fréttamennsku
BA í sálfræði

