uppgötvaðu eigin
ofurkrafta og nýttu möguleika þína til fulls
Skráðu þig á póstlistann minn og þú færð senda fría vinnubók með æfingum sem hjálpa þér að kynnast eigin styrkleikum og hvernig þú getur beitt þeim í daglegu lífi.
Af hverju ættir þú að sækja vinnubókina?
Ef þú þekkir styrkleika þína getur þú beitt þeim með markvissum hætti til að takast á við áskoranir af sjálfsöryggi, taka upplýstar ákvarðanir um starfsferil þinn og byggja upp djúpstæð sambönd.
Vinnubókinni er ætlað að hjálpa þér að koma auga á þína helstu styrkleika, skoða hvernig þeir hafa stuðlað að fyrri velgengni og kanna leiðir til að beita þeim í núverandi starfi og ekki síst hvernig þú getur nýtt þá inn í framtíðina.
Æfingarnar hjálpa þér að:
Bera kennsl á þína einstöku ofurkrafta
Efla sjálfstraust
Bæta samskipti
Ná starfstengdum markmiðum
Ná persónulegum vexti
Um mig
Ég er Lella, PCC vottaður markþjálfi, mannauðs- og markaðssérfræðingur með fjölbreytta reynslu úr íslensku atvinnulífi.
Ég er sterkur leiðtogi og breytingaafl sem nýtir aðferðir markþjálfunar til að styðja fólk og fyrirtæki til vaxtar. Ég hef mikla reynslu af verkefnastjórnun, markaðsmálum, samskiptum og stýringu mannauðs.
Ég hef undanfarin ár starfað við markaðsmál og samskipti i ferðaþjónustu og hef verið ófeimin við að horfa út fyrir kassann og feta nýjar slóðir. Einnig hef ég greint vinnustaðamenningu, samskipti og vinnuferla og lagt fram leiðir til úrbóta. Ég hef mikla reynslu af því að efla mannlega þáttinn á vinnustöðum og byggja upp jákvæða og hvetjandi vinnustaðamenningum
Ég er með PCC vottun frá International Coaching Federation með meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku frá sama skóla. Auk þess er ég með BA gráðu í sálfræði. Ég er líka WorkHuman Certified Professional. Einnig hef ég sótt námskeið og fyrirlestra um hvetjandi forystu, jákvæða sálfræði og núvitund á vinnustað og finnst ég þar hafa komist í algjöra gullnámu.
Ég er líka með réttindi til að gera NBI huggreiningar sem eru ótrúlega sterkt tól þegar verið er að vinna með teymi og bæta samskipti.
Ég vil gjarnan hjálpa þér að leysa úr læðingi þá krafta sem innra með þér búa. Heyrðu í mér og byrjum að skapa þér jarðveg og umhverfi þar sem þú getur vaxið og dafnað.