Hver er ég?
Hvað vil ég?
Hvernig kemst ég þangað?
Helgarnámskeið með Völu og Lellu 19.-21. september 2025
Sjálfsrækt | Slökun | Sjálfstyrking | Markmiðasetning
Þráir þú að hægja á, staldra við og hlusta á þína eigin innri rödd?
Við bjóðum þér í nærandi ferðalag þar sem þú færð tækifæri til að dýpka sjálfsþekkingu þína, efla innri styrk og rækta líkama og sál. Þetta námskeið er sérstaklega hannað fyrir konur sem eru tilbúnar að taka skrefið og ýta af stað jákvæðri umbreytingu í eigin lífi.
Á námskeiðinu vinnum við í mjúku og styðjandi umhverfi þar sem þú getur sleppt takinu á hversdagsstreitu og álagi og fengið tækifæri til að kafa dýpra í eigin líðan og langanir. Með markþjálfun, Jóga Nidra og hagnýtum æfingum hjálpum við þér að róa taugakerfið, losa um spennu í líkama og huga og skapa skýrleika um það hver þú raunverulega ert og hvert þú vilt stefna.
✨ Á námskeiðinu færð þú:
Markþjálfun sem gefur þér öflug verkfæri til sjálfskoðunar, sjálfstyrkingar og markmiðasetningar
Jógatíma sem styðja við djúpa slökun og endurnæringu, auka innsæi og skapa tengingu við líkama og sál
Núvitundaræfingar sem hjálpa þér að vera til staðar í eigin lífi og njóta augnabliksins
Hvetjandi og uppbyggileg samtöl við konur sem eru á svipuðum stað á lífsleiðinni
Veglegan gjafapoka
Snarl og drykki
1 x markþjálfunartíma eftir námskeiðið
✨ Á námskeiðinu færðu tækifæri til að skoða djúpar og mikilvægar spurningar á borð við:
Hver er ég þegar ég stíg út úr hlutverkum og væntingum annarra?
Hvað vil ég raunverulega fá út úr lífinu?
Hvernig get ég skapað líf sem er í fullkomnu samræmi við mínar innstu þrár og þarfir?
Hvað hefur mótað mig í lifinu?
✨ Gefðu þér þetta mikilvæga tækifæri til að staldra við, hlaða batteríin, styrkja innra jafnvægi og stíga meðvitað skref inn í næsta kafla lífsins af áræðni.
📅 Dagsetning: 19.-21. september
📍 Staðsetning: Heillandi hugur, Hlíðasmára 4
Komdu og vertu með – þú átt það skilið!
Fullt verð: 39.900 kr.
Snemmskráningartilboð fyrir þær sem skrá sig fyrir 30. júní: 29.900 kr.
📅 Dagur 1: Stuttur hittingur
18:00 - 18:30 | Upphaf
18:30 - 19:00 | Dagskrá kynnt
19:00 - 19:30 | Slökun og ásetningur
📅 Dagur 2: Hver er ég? - Sjálfsþekking og innri ró
🎭 Þema dagsins: Að staldra við, hlusta, skynja og skilja sjálfa sig
09:00 - 09:30 | Morgunrými
09:30 - 10:30 | Sjálfsþekking - Hver er ég og hvað hefur mótað mig?
10:30 - 10:45 | Kaffihlé
10:45 - 11:45 | Sjálfsþekking - frh.
11:45 - 12:15 | Yoga Nidra
12:15 - 13:15 | Hádegishlé
13:15 - 14:15 | Að spegla sjálfa sig – Sjálfsmynd og sannindi
14:15 - 15:00 | Tilfinningakveikjur og -glimmer
15:00 - 15:15 | Kaffipása
15:15 - 16:00 | Yin Yoga
16:00 - 16:30 | Lokahringur og innra samtal
📅 Dagur 3: Hver er ég? - Sjálfsþekking og innri ró
🎯 Þema dagsins: Að efla innri styrk, móta framtíðarsýn og rækta sjálfsmildi
09:00 - 09:30 | Morgunrými
09:30 - 10:30 | Hvað vil ég í raun og veru?
10:30 - 10:45 | Kaffihlé
10:45 - 12:00 | Sjálfstyrking: Trú á eigin getu
12:15 - 13:00 | Hádegishlé
13:00 - 14:30 | Yin Yoga og djúp slökun
14:30 - 14:45 | Kaffipása
14:45 - 16:00 | Sjálfsmildi og framtíðarsýn
16:00 - 16:30 | Lokaathöfn
UM OKKUR
Lella er PCC vottaður markþjálfi, mannauðsráðgjafi, viðskiptafræðingur og markaðskona með fjölbreytta reynslu úr íslensku atvinnulífi. Hún er sterkur leiðtogi og breytingaafl sem nýtir aðferðir markþjálfunar til að styðja fólk og fyrirtæki til vaxtar. Hún hefur mikla reynslu af verkefnastjórnun, markaðsmálum, samskiptum og stýringu mannauðs.
Lella hefur undanfarin ár starfað við mannauðsmál, markaðsmál og samskipti i ferðaþjónustu og hef verið ófeimin við að horfa út fyrir kassann og feta nýjar slóðir. Hún hefur mikla reynslu af því að efla mannlega þáttinn á vinnustöðum og byggja upp jákvæða og hvetjandi vinnustaðamenningu.
Lella er með PCC vottun frá International Coaching Federation með meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku frá sama skóla. Auk þess er hún með BA gráðu í sálfræði. Lella er líka WorkHuman Certified Professional. Einnig hefur hún sótt námskeið um hvetjandi forystu, jákvæða sálfræði og núvitund á vinnustað.
Lella sérhæfir sig í starfstengdri markþjálfun með fólki sem vill kynnast eigin möguleikum og styrk, setja sér markmið, ná jafnvægi vinnu og einkalífs og bæta eigið líf. Hún hefur sérstaka ástríðu fyrir því að hjálpa fólki að vinna með loddaralíðan og neikvæðar innri raddir.
Vala er viðurkenndur Adult Chair® markþjálfi, með 16 ára reynslu úr menntageiranum ásamt því að hafa komið víða við sem blaðamaður og sérfræðingur í samskiptamálum. Vala hefur mikla reynslu erlendis frá, bæði í lífi og starfi, hefur starfað með fjölbreyttum hópi fólks og þannig öðlast næmni fyrir og innsýn í ólíka menningarheima.
Vala er viðurkenndur Adult Chair® markþjálfi frá The Michelle Chalfant Company í Bandaríkjunum, með meistaragráðu í alþjóðum almannatengslum frá University of Cardiff, kennsluréttindi frá Háskólanum í Reykjavík, diplómagráðu í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands auk BA gráðu í ensku frá sama skóla. Vala hefur einnig lokið Hatha jóganámi frá Jógasetrinu hjá Auði Bjarnadóttur, Yoga Nidra frá Amrit Yoga Institute hjá Kamini Desai og Yin Yoga frá Yoga Alicia Casillas / Eden Yoga.
Undanfarin ár hefur Vala fetað nýjar slóðir í djúpri sjálfsvinnu með áherslu á Yoga Nidra, Yin Yoga og The Adult Chair® nálgunina með einlægni og umhyggju að leiðarljósi.
Í starfi sínu sem öðruvísi markþjálfi nýtir hún þessa áhrifaríku nálgun sem byggist á því að að dvelja meira í líkama en huga, staldra við, hlusta á og finna tilfinningar, auk hugleiðslu, núvitundar og öndunar, til að vinna á ýmsum áskorunum sem hindrar fólk í að vera heilbrigðasta útgáfan af sjálfu sér.