sterkari
í starfi

5. NÓVEMBER

ÓKEYPIS NETFYRIRLESTUR

🕒 Lengd: 1 klst
📅 Hvenær: 5. nóvember kl.12:00
📍 Hvar: Rafrænt (fundarhlekkur er sendur út eftir skráningu)
💼 Fyrir hvern: Öll þau sem vilja öðlast aukið sjálfstraust í starfi og stíga inn í styrkleika sína og möguleika af áræðni og festu.

um
erindið

Í fyrirlestrinum verður farið yfir hvernig hægt er að byggja upp ​sjálfstraust og nærveru á vinnumarkaði og öðlast aukna trú á eigin þekkingu, getu og færni.

Um er að ræða ókeypis hádegisfyrirlestur sem ætti að höfða til allra þeirra sem vilja styrkjast í starfi, skapa sér tækifæri og getu til að elta þau, og aukna áræðni til að standa vörð um eigin vellíðan í vinnu.

Markmiðið er að stuðla ​að persónulegum vexti þátttakenda og faglegri þróun, ásamt auknu sjálfstrausti og sátt í starfi.

Í fyrirlestrinum er meðal annars fjallað um:

  • Loddaralíðan - Einkenni og áhrif

  • Að skilja, byggja upp, viðhalda og geisla af sjálfstrausti

  • Að takast á við áskoranir og bakslag

  • Að kynnast eigin styrkleikum